Leikhús fáránleikans

Það er alveg ótrúlegt hvað Samspillingin og Vinstri SnúSnú ætlar að ganga langt í að blekkja almenning á Íslandi. Og splæsa heilum 27 millum í þetta rugl, er hneiksli, í staðin fyrir að nota peninginn til að stytta raðirnar fyrir framan hjálparstofnanir á Íslandi.

Það er ljóst að þetta er leiksýning, Hagsmunasamtök heimilanna eru sniðgengin í þessum gjörningi líkt og þau hafa verið í fullkomnu fjölmiðlabanni hjá RÚV og ekki sést í Silfrinu þótt undanfrnar vikur hefur mikið verið gert til að henda hagsmunum heimila landsins fyrir borð.

Það er nöturleg staðreynd að langar raðir eru fyrir framan hjálparstofnanir á Íslandi 2009 og nú eru 2000 heimili sem bíða slátrunar.

Það er eftirtekatrvert að þessi fundur er í umsjón leikhúsfólks enda er þetta hrein leiksýning.


mbl.is Þjóðfundurinn vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband