Titanic 2

Góðir Íslendingar, vinsamlega bíðið eftir ykkar sjálfsögðu réttarbótum rétt á meðan Samspillingin og Vinstri SnúSnú bjarga sínu ruslafólkinu á ruslaBankaHugunum.

Hér er ríkisÓstjórnin að keyra sitt prógramm byggt á þeirri vissu að "fólk sé fífl" og að sjálfsögðu að við Íslendingar séum stórustu fífl í heimi. Hingað til hefur ruglvísitala sett allt á hvolf og nú á líka að notast við bullvísitölu, það er alveg bókað að þetta mun bara skila tómri vitleysu.

Þeir sem sáu bíómyndina Titanic og tóku eftir því að almúginn var lokaður niðri meðan "fína" fólkið tók alla björgunarbátana. Já þetta er að gerast hér og nú á Íslandi beint fyrir framan nefið á þér góði Íslendingur. Ég tel að "fína" fólkið sé ekki Íslendingar, heldur landráðapakk sem ofurselur þjóð sína án þess að hiksta.

Ísland í dag er bara alveg eins og Ísland í gær.

Kæri Íslendingur, ef þú ert ekki alveg snúllandi brjálaður út í ruslalýðinn á Alþingi núna, athugaður hvort þú sért með púls.

GARÐÁHALDABYLTINGU STRAX ! ! !


mbl.is Greiðslujöfnunarfrumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Er hægt að losna vð hana áður en hún fremur meiri afglöp?  Garðáhöld,ég á gamla arfasköfu. 

Helga Kristjánsdóttir, 24.10.2009 kl. 02:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband