Usss . . . ASÍ sefur værum eilífðar-blundi

Það er ótrúlegt að hin svokallaða verkalýðshreyfing er að láta 25-40% kjaraskerðingu ganga yfir landsmenn og gerir ekki rassgat nema væla um mannfrekar framkvæmdir og að fólk sé tekið af lífi fjárhagslega á fljótvirkan "mannsæmandi" hátt. Að þetta gengi geti labbað um götur bæjarins og heilsað fólki er með ólíkindum.

Það segir allt sem segja þarf að á Íslandi í dag sé ekki allt logandi í verkföllum. Það er búið að sprauta landslýð með lömunarveiki.

RíkisÓstjórn Íslands segir eins og einhver sem fellur út um glugga á 15 hæð að allt sé nú í lagi, enda við bara stödd á 3 hæð.

Elítu Íslands er að takast ætlunarverk sitt að misskipta Íslandi á hrottalegan hátt, ef við eigum að fara í útrás með eitthvað þá er það Cósý Nostur Íslands, okkar mafía er lang flottust og skilvirk með eindæmum.

Byltingu STRAX á Íslandi ! ! !


mbl.is Eldsneyti hækkar um 5 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband