Það er fullkomnað . . .
24.2.2010 | 00:28
. . . hjá íslenzku mafíunni, Cósý Nostur, sem er samansett af ASÍSA, ríkis- og embættisÓsóma ásamt fylgifiskum sínum fjölmiðlum og dómskerfi landsins, hefur tekist að fullkomna misskiptingu hjá litlu þjóðinni okkar Íslandi.
Meðallaun þessa fólks er a.m.k. 7-9 sinnum hærri en lægstlaunaða fólkið ber úr bítum, fyrir utan alla bílastyrkina og annað bull sem er í boði almennings.
Þessi saga er ekkert ný, hér er hún sögð á frábæran hátt; http://www.youtube.com/watch#v=zry2M6G5Mkg&feature=related , meðan allt leikur í lyndi er hægt að nuddast pínu við pupulinn, en ef gat kemur á skipið skýrast línur fljótt og hóparnir aðskiljast eins og vatn frá olíu.
Á Íslandi í dag er verið að skrifa söguna Títanic 2, það er sorglegt að sjá hversu vel kvikmyndin nær þessu mómenti. Það má hugsa sér að í stað þess að skip er að sökkva þá er lítil eyja að sökkva. Núna þegar almenningur er að frjósa í hel situr elítan í hálftómum björgunarbátum og dettur ekki í hug að hjálpa eða bjóða meðborgurum sínum sæti í bátnum. Skömm og hneisa.
Guð blessi almenning þessa volaða lands !
Helmingur með undir 200.000 kr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.