Brot á Stjórnarskrá Íslands

Nú er full fram genginn glæpur elítuMafíunnar, fyrst dæmir hræsnaréttur eftir geðþótta síðan á að gera glæpinn löglegann með lagasetningu.

Með þessum lögum er verið að gera gera 200 milljarða upptæka hjá heimilum landsins. Eignaréttarákvæði Stjórnarskrárinnar virðist ekki eiga við almenning.

Ef hræsnaréttur dæmdi "rétt" hvers vegna þarf að setja lög til að fullkomna glæpinn ?

Nú þarf að kæra elítuMafíuna til alþjóðadómstóla.


mbl.is Gengislánafrumvarp lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur stendur sig vel

Ögmundur skilur hvað það er mikið þjóðfélagslegt böl að leggja fólk í ævilangt tölvustýrt einelti verði það fyrir því "óhappi" að lenda í gjaldþroti.

Fólk getur orðið gjaldþrota vegna aðstæðna sem það sjálft hefur enga stjórn á, t.d. fjárhagslegt ofbeldi, svik, veikindi osfv.

Ögmundur hefur hækkað mikið í áliti hjá mér við þessi lög.


mbl.is Frumvarpið mannréttindabót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælin lífræn . . .

Tók eftir því á Austuvelli að mótmælendur höguðu sér svipað og frumur í líkama. Þegar óæskilegir vírusar eins og Óli Björn og Nazista-fánar (til uppl. fyrir íslStazi, ég er ekki að segja að ÓB sé nazisti) þá brugðust heilbrigðu frumurnar við skjótt og hentu Óla "út" og brenndu nazista-fánann.

Það er merkilegt að fylgast með þessari þróun og þessi nýji "líkami" Íslands er að vaxa hratt og mun taka föstum tökum á bakteríum og vírusum.

Áfram Ísland !


mbl.is „Leikritinu er lokið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ElítuMafían orðin hrædd

Nú förum við að sjá tilraunir til ritskoðunar og kúgun á tjáningafrelsi einstaklinga. Nú er full ástæða til að mótmæla við höfuðstöðvar Sazi á Íslandi, þetta er mjög alvarlegt mál.
mbl.is Yfirheyrður vegna Facebookfærslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um pressu . . .

Tillögur HH eru mjög góðar og tími til kominn að taka þær upp og framkvæma.

HH hefur alltaf sagt að það skipti ekki máli hver komi tillögum þeirra í framkvæmd, bara að það sé gert.

Það er ljóst að ef HH gengur frá samningaborði í næstu viku þá taka mótmælendur "silkihanskana" af, það er góð pressa . . .


mbl.is „Þetta var gott samtal“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HH með góðar tillögur

Tillögur HH hafa staðist tímans tönn og er jafn góðar núna og þegar þær voru settar saman í upphafi árs 2009. Nú er að vona að þær verði framkvæmdar án breytinga.

Ég skil ekki hvers vegna norræna velferðarstjórnin hafi ekki haft áhuga fyrr á þessum hugmyndum, það er sennilega svo gott í bólinu hjá fjármaginu.

Geta verður þess að þetta er hugsanlega PR-stunt hjá stjórninni.


mbl.is Fundað þar til eitthvað liggur á borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuðpaurarnir sleppa

Eins og í öllu sönnum mafíusögum þá sleppa höfuðpaurarnir í þessari íslenzku glæpasögu. DO, HÁ, FI og VS sleppa . . . eða hvað . . . verði þeim að góðu að lifa á Íslandi.
.
Nú er það full sannað að Alþingi er skálkaskjól fyrir skipulagða glæpastarfsemi sem hefur gengið undir ýmsum nöfnum, kolkrabbinn, smokkfiskurinn, elítuMafían.

Ekki er að sjá á verkum stjórnvalda undanfarna daga að þetta sé að breytast og núna er hræsniRéttur Íslands búinn að minn á að þeir eru meðlimir í þessari mafíu.

Guð hjálpi almennum borgurum Íslands ! ! !


mbl.is Þungbær skylda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarsorg í dag

Í dag er sorgardagur í sögu Íslands, það er einhvernvegin svo skýrt allt í einu hvernig staðan er og förin eftir blóðsugurnar svo greinileg.
.
Rannsóknarskýrslan, þigmannanefndin, gegndarlaust ofbeldi fjármálastofnana, lygar og blekkingar stjórnmálanna enn í dag. Núna síðast féll hræsnisRéttur Íslands. Það stendur semsagt ekki steinn yfir steini.

Staða landsins er svipuð og Sómalía, nema almenningur trúir því að Ísland sé Norrænt velferðarsamfélag. Eina sem er norrænt á Íslandi núna er Stokkhólmseinkennið.

Kynslóðin sem Amma mín og Afi voru hluti af áttu fullt af góðmennsku og umhyggju fyrir náunganum, sú kynslóð sem nú heldur á kyndlinum er öfugsnúið blóðsugu lið sem engu eyrir og hefur enga umhyggju fyrir öðrum.

Guð hjálpi Íslandi . . . og þeim Íslendingum sem núna þjást . . .


mbl.is Höfða verður nýtt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Púkinn á fjósbitanum . . .

. . . nei er ekki púkinn að tjá sig fyrir hönd blóðsuguMafíunnar. Ef hægt er að slá heimsmet í hræsni þá er þessi kall heimsmeistari.

.

Gylfi, segðu af þér STRAX ! ! !


mbl.is Hindrunum verið rutt úr vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfall ! ! !

Eina ráð almennings núna er alsherjar greiðsluverkfall; http://www.heimilin.is/varnarthing/hvad-er-greidsluverkfall

Það gengur ekki lengur að almenningur svari ekki fyrir sig meðan blóðsuguElítan kemur sér bara betur fyrir á heimilum landins með hjálp stjórnvalda. Eru engin takmörk.

ps. Árni Páll er eini ráðherran sem kom á fundi með Hagsmunasamtökum heimilanna með tvo óeinkennisklædda sérsveitarmenn með sér, eithvað er hann með slæma samvisku (þ.e. ef hann er með hana)


mbl.is Frumvarp um að gengistryggð lán verði ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband